top of page

Jane Addams

Jane Addams fæddist í Illinois fylki í Bandaríkjunum árið 1860. Jane ólst upp hjá föður sínum því móðir Jane lést er Jane var þriggja ára. Hún var næst yngst níu systkina. Faðir hennar var stjórnmálamaður með góðar tekjur og ólst því upp á heldur góðu og vel stæðu heimili. Faðir Jane hvatt hana alltaf til að sækja sér nám en það var sjaldgæft fyrir tíðarandann. Hann lést er Jane var um tvítugt og fór þá með fósturmömmu sinni til Evrópu þar sem hún kynntist öðrum menningarheimum sem hafði mikil áhrif á verk hennar í framtíðinni.


Á þrítugsaldri sat Jane gjarnan við skrif um hvað hún vildi að framtíð sín bæri í skauti sér. Í annarri ferð sinni til Evrópu með vinkonu sinni, Ellen G. Starr, þá 27 ára gömul, sá hún hvað það var sem vantaði upp á framtíðar drauma sína. Hún skyldi opna skýli í Chicago fyrir þá sem minna máttu sín í samfélaginu. Þær vinkonur héldu í framhaldinu margar ræður um þarfir samfélagsins og söfnuðu peningum fyrir málstaðinn og tóku að sér alls kyns verkefni, voru til staðar fyrir ungar konur, hjálpuðu börnum og hlustuðu á hrakfallabálka. Þær keyptu hús og kölluðu það Hull-húsið árið 1889. Verkefni Hull-hússins stækkuðu og á öðru ári voru 2.000 vikulegir gestir sem þuggu hina ýmsu aðstoð.


Jane Addams talaði alla tíð fyrir friði og hélt marga fyrirlestra þess efnis á ævi sinni. Árið 1910 var hún gerð, fyrst kvenna, að heiðursdoktor við Yale háskólann. Í janúar 1915 samþykkti hún að taka að sér formennsku Kvenfrelsishreyfingarinnar og fjórum mánuðum síðar formennsku í kvennaþingi Alþjóða viðskiptastofnunarinnar sem stofnaði Alþjóða kvennasambandið fyrir frið og frelsi (International Women's Union for Peace and Freedom). Jane starfaði sem forseti samtakanna til 1929 en tók auk þess að sér mörg önnur hlutverk, sum þeirra sem hún sinnti til dauðadags.


Árið 1926 fékk Jane hjartaáfall og náði sér aldrei upp úr veikindunum. Í desember 1931 var Jane sæmd friðarverðlaunum Nóbels, önnur konan frá upphafi fyrir óeigingjörn störf í þágu samfélagsins. Hún hafði m.a. reynt að sannfæra Woodrow Wilson, þáverandi forseta Bandaríkjanna um að koma á frið milli ríkjanna sem stóðu í stríði. Þegar Bandaríkjamenn tók gagnstæða ákvörðun og fóru í stríðið talaði Jane opinskátt gegn því. Þann dag lá Jane hins vegar á sjúkrahúsi vegna veikinda sinna. Eftir uppskurð árið 1935 kom í ljós að Jane hefði krabbamein og lést þremur dögum síðar. Ríkisstjórn Bandaríkjanna heiðruðu Jane fyrir vinnu hennar til friðar. Jarðarför hennar fór fram í garði Hull-hússins.


Flestar breytingar sem urðu á velferðarkerfinu í Bandaríkjunum á árunum 1895-1930 tengjast Jane Addams.

Vantar kenningu? Viltu senda glósur? Hefurðu spurningu? Láttu mig vita hér fyrir neðan 👇

Hafa samband

Takk fyrir að hafa samband!

Senda skrá

Skólinn

Mentor

©2024 Einar Aron

bottom of page