top of page

Heildarsýn

Heildarsýn er helsta aðferðarfræði sem félagsráðgjafar styðjast við í dag til þess að sinna skjólstæðingum sínum. Félagsráðgjafinn verður að kynna sér allar aðstæður sem skjólstæðingar hans eru í þegar leitað er til hans. Hann skoðar einstaklinginn í öllum ólíkum aðstæðum sem hann kann að geta verið í eða í hverju hann hefur lent. Félagsráðgjafinn reynir að túlka samhengi aðstæðna þeirra og hvaða áhrif þær hafa á skjólstæðinginn. Til að geta þess notar hann reynsluna í starfi sínu og fræðilegar kenningar. Síðan þarf félagsráðgjafinn að útbúa ítarlega mynd af veruleika einstaklingsins, sjá fyrir sér tengsl hans við aðra einstaklinga og stofnanir sem og stöðu hans í samfélaginu. Viðtöl við skjólstæðinga gerir félagsráðgjafanum kleift að byggja upp þessa mynd og með þessu er öruggt að notkun heildarsýnar sé að ræða þegar kemur að aðstæðum einstaklingsins.

Vantar kenningu? Viltu senda glósur? Hefurðu spurningu? Láttu mig vita hér fyrir neðan 👇

Hafa samband

Takk fyrir að hafa samband!

Senda skrá

Skólinn

Mentor

©2024 Einar Aron

bottom of page